GOLFKLÚBBURINN ← Forsíða

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært 23. október 2026

Hver ber ábyrgð

Golfklúbburinn Holtagörðum ehf., kt. 590517-1120, Rauðási 2, 110 Reykjavík („Golfklúbburinn“, „við“) ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem unnið er með í bókunarkerfinu. Fyrirspurnir og beiðnir sendist á golf@golfklubburinn.is.

Stefnan gildir þegar þú bókar tíma, kaupir eða færð gjafabréf, stofnar aðgang eða hefur samband við okkur.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Til hvers við notum upplýsingarnar

TilgangurLagagrundvöllur (6. gr. GDPR)
Taka við bókunum og skráningum á námskeið, senda staðfestingar og áminningar með tölvupósti og SMSFramkvæmd samnings
Láta þig vita ef sæti losnar á námskeiði (og, ef þú óskar þess, ef laus sæti eru á sambærilegum námskeiðum) eftir að þú skráir þig á biðlistaSamþykki (þú velur það sjálf/ur í skráningunni og getur afskráð þig með hlekk í hverjum skilaboðum)
Selja gjafabréf: taka við greiðslu, senda bréfið og kvittun, og halda utan um inneignFramkvæmd samnings
Senda gjafabréfið til viðtakanda sem kaupandi tilgreinirLögmætir hagsmunir (að koma gjöfinni til skila)
Bókhald og reikningagerðLagaskylda
Tölfræði um viðskiptavini og notkunLögmætir hagsmunir
Skilaboð og tilboð til viðskiptavinaLögmætir hagsmunir. Þú getur afþakkað hvenær sem er

Tölfræði: Við greinum bókunarsögu, t.d. hversu oft og hvenær viðskiptavinir koma og hvað þeir bóka. Tilgangurinn er að bæta þjónustu, verðlagningu og opnunartíma. Greiningin nær til einstakra viðskiptavina. Við notum hana líka til að senda þér skilaboð sem eiga við þig.

Umferðarmæling: Við teljum hversu margir heimsækja vefinn og hvaða síður þeir opna. Til að skilja að einstaka gesti á sama degi reiknum við dulkóðað hakk af IP-tölu og gerð vafra með slembnu salti sem breytist á hverjum degi. Hakkið og saltið eru aðeins í minni vefþjónsins og eru aldrei vistuð, og saltinu er hent í lok dags. Eftir stendur aðeins dagleg talning (fjöldi gesta, síðuopnana og koma eftir síðu og uppruna), sem er ekki hægt að rekja til þín, og því þekkjum við þig ekki aftur milli daga. Við notum engar vafrakökur í þessu og engan utanaðkomandi greiningaraðila. Innskráðir stjórnendur eru ekki taldir.

Skilaboð til viðskiptavina: Hafir þú bókað hjá okkur getum við sent þér tölvupóst eða SMS um sambærilega þjónustu, t.d. boð um að halda föstum tíma á næsta tímabili. Þú getur afþakkað slík skilaboð þegar þú bókar og í hverjum skilaboðum. Afþakkir þú hættum við strax að senda þér þau og að nota upplýsingar þínar í þeim tilgangi.

Við seljum ekki persónuupplýsingar og tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif á þig.

Hverjir fá aðgang

Við notum eftirfarandi þjónustuaðila, sem vinna upplýsingarnar eingöngu fyrir okkur samkvæmt vinnslusamningi:

VinnsluaðiliHlutverk
RailwayHýsing kerfis og gagnagrunns
GitHubGeymsla dulkóðaðra afrita
RapydGreiðslumiðlun: tekur við kortagreiðslum fyrir bókanir, gjafabréf og námskeið. Við fáum aldrei kortaupplýsingar þínar
ResendSending tölvupósts
SMS-þjónustuaðiliSending SMS

Sumir þessara aðila eru utan EES. Flutningur þangað byggir á EU-US Data Privacy Framework eða stöðluðum samningsskilmálum ESB.

Biðjir þú um kennslutíma fær kennarinn nafn þitt, síma, netfang og skilaboð. Skráir þú þig á námskeið fá kennarar námskeiðsins (einn eða fleiri) nafn þitt, síma, netfang, forgjöf og athugasemd þína, svo hægt sé að hafa samband og kenna á þínu stigi. Vinir sem félagi velur í bókun fá tölvupóst um hana. Viðtakandi gjafabréfs sér nafnið sem kaupandi setti sem sendanda og kveðjuna, en ekki netfang eða símanúmer kaupanda. Öðrum afhendum við ekki upplýsingar nema lög krefjist þess.

Hve lengi við geymum upplýsingar

GögnGeymslutími
FélagsaðgangurÞar til þú eyðir honum
Bókanir og kennslubeiðnir24 mánuðir frá síðasta skipti, síðan gerðar nafnlausar
Skráningar á námskeið24 mánuðir frá síðustu lotu námskeiðsins, síðan gerðar nafnlausar (greiðsla og sæti haldast sem bókhald). Ógreiddar og útrunnar skráningar sem bíða greiðslu á netinu: 48 klukkustundir
Biðlisti námskeiðsÞar til þú skráir þig á námskeiðið, afskráir þig, eða námskeiðið hefst. Ef þú vilt líka frétta af sambærilegum námskeiðum: í mesta lagi 90 dagar. Færslunni er eytt, ekki gerð nafnlaus
GjafabréfMeðan bréfið er í gildi (4 ár) og síðan samkvæmt lögum um bókhald
Ógreiddar pantanir á gjafabréfum48 klukkustundir
Ósk um kylfumælingu og bókun á PuttView flötina24 mánuðir
ÆfingakortMeðan kortið er til (það rennur ekki út). Nöfn og netföng eru fjarlægð ef þú biður um eyðingu, en kóði, inneign og saga halda sér
StarfsmannaskráMeðan starfsmaður starfar hjá okkur; eytt þegar stjórnandi eyðir honum (nafn á bókunum og í aðgerðaskrá fylgir þeim)
Aðgerðaskrá kerfisins24 mánuðir
Afrit af gagnagrunni90 dagar
Afþökkun tilboðaMeðan þörf er á til að virða hana
Bókhaldsgögn7 ár, samkvæmt lögum um bókhald

Tölfræði sem ekki er hægt að rekja til einstaklinga geymum við áfram.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar, eytt eða afhentar á tölvutæku formi, og að takmarka vinnslu. Þú getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, þar á meðal tölfræðigreiningu. Andmælir þú markaðssetningu hættum við henni án frekari skilyrða.

Félagar geta sótt gögnin sín, afþakkað tilboð og eytt aðganginum sjálfir undir „Mín gögn“. Aðrar beiðnir sendir þú á golf@golfklubburinn.is. Við svörum innan mánaðar.

Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er ávallt birt hér.